Blessaðir drengir hér með ætla ég að koma með fyrstu færsluna á nýju ári. Ætla ég að gefa ykkur innsýn inn í minn laganámsheim með nokkrum dómum sem hafa verið notaðir í kennslunni, Góða skemmtun.
_ _ _ _
M ákærður fyrir að hafa slegið eiginkonu sína í ennið með kúluhamri, þar sem hún lá sofandi í sófa í stofu á heimili þeirra og lagt plastpoka yfir andlit hennar og troðið honum upp í munn hennar.
Héraðsdómari taldi sannað að ákærði hefði ráðist að konu sinni með hamri, er hún var sofandi á heimili þeirra, sem hann sló hana með í ennið, og plastpoka, sem hann hélt fyrir vitum hennar og reyndi að troða upp í munn hennar að hluta með þeim afleiðingum að hún fékk kúlu og marblett á enni, rispur og marbletti víða um líkamann og að öllum líkindum vægan heilahristing.
Gegn eindreginni neitun ákærða var talið ósannað að hann hefði ætlað að svipta eiginkonu sína lífi. Sýknaður af tilraun til manndráps.
Ákærði réðst hins vegar að eiginkonu sinni þar sem hún var sofandi, með hættulegu verkfæri, sem hann notaði til að slá hana með íhöfuðið, og plastpoka, sem hann hefur viðurkennt að hafa haldið fyrir vitum hennar í því skyni að kæfa frá henni hljóð, svo að hún átti erfitt með andardrátt. Aðferð ákærða og atlagan verður að teljast fólskuleg.
Svo kemur snilldin,afsökunin hjá manninum fyrir háttseminni
“Ákærði neitar staðfastlega að hafa ætlað að bana konu sinni. Hann hefur gefið þá einu skýringu á verknaði sínum, að konan “hafi verið leiðinleg við sig undanfarna mánuði og hann hafi viljað hrekkja hana.” Ákærði sagðist hafa “danglað” hamrinum laust í enni konu sinnar. Eiginkonan taldi höggið ekki hafa verið mjög þungt, enda hlutust minniháttar áverkar af.”
Strákar, Þá vitum við hvað við gerum þegar kærusturnar eru leiðinlegar, dangla aðeins í hausinn á þeim með kúluhamri!!!!! og tek það fram þetta er íslenskur dómur.
_ _ _ _
“Mannætan frá Rotenburg“
Þjóðverji sem játað hefur á sig mannát kom á ný fyrir rétt í Frankfurt í dag, ákærður fyrir að hafa myrt manninn sem hann lagði sér tilmunns. Talið er að fórnarlambið hafi sjálfviljugt leyft manninum, Armin Meiwes, að myrða sig og borða. .
Armin Meiwes, 44 ára Þjóðverji, var í gær dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morð og mannát. Meiwes hafði áður hlotið vægari dóm fyrir sömu sök, átta og hálfs árs fangelsi, en málið var tekið upp á ný í janúar síðastliðnum eftir aðáfrýjunardómstóll hafði ógilt fyrri dóminn.
Í fyrri réttarhöldunum þótti Meiwes hafa það sér til málsbóta að fórnarlambið hafði fyrirfram gefið samþykki sitt og var hann því aðeins dæmdur fyrir manndráp en ekki morð.
Við réttarhöldin lýsti Meiwes aftur atburðarásinni þegar hann myrti BerndJürgen Brandes heima hjá sér í Rotenburg. Þeir höfðu kynnst á Internetinu, þar sem Meiwes auglýsti eftir fórnarlambi.
Meiwes segir að Brandes hafi viljað vera "étinn lifandi" og samþykkt fyrir fram að Meiwes myndi stinga hann til bana eftir að Brandes hefði drukkið lyf til þess að missa meðvitund.
"Annars hefði ég aldrei gert þetta," sagði Meiwes, sem tók verknaðinn upp á myndband.
Meiwes segir að Brandes hafi einnig hvatt sig til að leggja sér fleira fólk til munns eftir dauða sinn. Meiwes segist engu að síður hafa hikað við að fremja verknaðinn. "Ég vildi borða hann,en ég vildi ekki drepa hann. "
Maður hreinlega spyr sig hversu sjúkur er heimurinn????
_ _ _ _
þá er kannski fyndasti dómurinn sem ég býð upp á og er íslenskur: />
Maður var ákærður fyrir að hafa, að beiðni H um að gelda sig, skorið á pung H meðhnífi, með þeim afleiðingum að flytja varð H á sjúkrahús og gera að meiðslum hans.
Málavextir: Ákærðivar drukkinn niðri í bæ ásamt H og bað H um að lána sér pening, sem H gerði. Hátti við geðræn vandamál að stríða og hafði oft talað um að losa sig við kynhvötina og hafði ákærði m.a. heyrt það. Bað H ákærða um að gelda sig.Þeir fóru heim til H og vildi H að ákærði notaði skrúfjárn til verksins, en ákærða leist ekki á það og notaði hníf. Ákærði fór síðan burt, en H hélt áfram að krukka í sig, en fann svo tilað hann varð að hætta. Fluttur á sjúkrahús.
Ákærði sagðist upphaflega ekki hafa ætlað að gelda H. Hann hefði tekið þessu sem hverju öðru gríni. Hann hefði síðan látið undan beiðni H.
Gat H gefið gilt samþykki? Ekkert kom fram í málinu þessefnis að hann gæti það ekki þó atburðurinn sé fjarstæðukenndur. Samþykki Hleysti ákærða undan refsingu.
ATHYGLISVERT AÐ LÁTA FÉLAGA SINN GELDA SIG, />
B.kv Heiðmar